Ađalvalmynd

Prófíll

  • Nafn: Ţórunn Rögnvaldsdóttir
  • Stađur: Akrahreppur
  • Atvinna: Nemi í Menntaskólanum á Akureyri
  • Hjúskaparstađa: Laus
  • Um mig: Sveitastúlka, í húđ og hár, sem hefur gaman af söng, teikningu, ljóđum og ljósmyndum.
  • Annađ: Ég elska appelsínusafa.

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Höggviđ velgerđir í marmara- skrifiđ mótgerđir í sandinn. -Ók. höf.

28. ágúst 2008 klukkan 19:22

Jæja það er langt síðan ég hef skrifað hérna, en ég ákvað að skella inn einhverju smá áður en ég fer ti Rhodos.
Já ég er sem sagt að fara út á laugardagsmorguninn, hlakka svakalega til. Hins vegar hef ég smá áhyggjur af hitanum og sólinni, mér tekst alltaf að brenna mig ég er að vísu með fjandi sterka sólarvörn ég vona bara að hún dugi.
Annars er svo sem ekkert mikið búið að gerast hérna ég er bara búin að vera að vinna voða lítið annað. Að vísu skrapp ég einu sinni suður til að kaupa efni í þjóðbúninginn minn. Svo fór ég á AKureyri einu sinni eða tvisvar, ég man það ekki alveg.
Við vorum að kaupa píanó, svo að Jórunn geti æft sig, ja ég líka þegar ég er heima hins vegar tók ég eftir að það er ekki neinn lás á nótnaborðinu, er ekkert viss um að það sé sniðugt þar sem við eigum litla frænku sem hefur gaman af því að fikta og ég veit ekki alveg hversu vel saman píanóið og hún fara.
Ég er búin að vera að pakka í dag, mér finnst hins vegar leiðinlegt að pakka og er ekkert dugleg við það, svo að það gengur misjafnlega, en þetta kemur.
Jæja, ég fer norður á morgun og svo svíf ég í sólina.


That's all folks!

Ţórunn Rögnvaldsdóttir

Yndislegasti dagur í lífi mínu var nótt. -Anita Ekberg

29. júní 2008 klukkan 20:53
Það ringdi í fyrsta skiptið í langan tíma í gær, svo að ég ákvað að herma og blogga í fyrsta skiptið í langan tíma. Annars hef ég frekar lítið að segja. Ég er bara að vinna eins og venjulega hérna heima, hins vegar fékk ég ekki aftur vinnuna mína hjá Gísla gamla í Miðhúsum. Frekar súr yfir því, verð líklega bara að heimsækja hann spes til þess að fá að skjóta hjá honum.
Ég er eiginlega bara búin að vera heima síðan á 17. júní, en ég fór í gær á Narníu- Prince Caspian. Ágæt mynd, ég hefði að vísu gert hana allt öðruvísi en hún var góð. Það var að vísu mjög mörgu sleppt og ýmsu breytt en það verður að hafa það, góð mynd. Hlakka eiginlega samt meira til þess að sjá þá næstu.
Annars er afskaplega lítið að frétta héðan, ég fer í píanótíma hjá Jóhönnu kórstjóra, við erum búin með heyskap, ég stefni á að fara til Vopnafjarðar núna í júlí kannski til Reykjavíkur líka( er ekki viss en þið hafið það í huga þarna fyrir sunnan). Síðan styttist í rauninni óðum í að við förum út, mér finnst svo stutt síðan við vorum í skólanum, já tíminn líður hratt júní að verða búin og ég ekki búin að gera næstum því allt sem ég ætlaði að gera, en það verður nú engu að síður að hafa það.
En núna ætla ég hugsanlega að gerast geitahirðir og hundatemjari, læt ykkur vita hvernig það gekk síðar.

That's all folks!
Ţórunn Rögnvaldsdóttir

17. júní

17. júní 2008 klukkan 21:56

Í dag er þjóðhátíðardagurinn okkar, venjulega geri ég nú ekkert svo sérstakt á þessum degi eða hef ekki gert það fyrir utan að fyrir tveimur árum fór ég í útskriftina hjá henni Steinunni systur, núna var leikurinn endurtekinn nema að í þetta skiptið var það hann Sindri bróðir sem að útskirfaðist, já þetta hófst hjá honum á endanum. Sumir höfðu óbilandi trú á honum (Kristjana ;) ) aðrir efuðust (pabbi) en honum tókst þetta allt saman. Í dag brottskráðust margir vinir mínir, ég er mjög hrædd um að ég eigi eftir að sakna þeirra alveg ógurlega, þetta á ekki eftir að eins og það á að vera á næsta ári þá á eftir að vanta krakkana sem hafa verið með mér í skólanum frá því að ég byrjaði. En það verður engu að síður gaman að upplifa að vera elst í skólanum og síðan verð ég, vonandi, að ári í sömu sporum og Sindri var í dag.
Annars hefur landið verið í heljargreipum hvítabjarnar. Sem að eyðilagði stóran hlut af æðarvarpinu í Hrauni sem hefur tekið mörg ár að byggja upp og getið þið ímyndað ykkur tilfinninguna að vita af hvítabirni í bakgarðinum hjá ykkur. Ja, ég vorkenni svo sem þessum ræflum sem að villast hingað, en engu að síður er ekki hægt að neita að hann olli heilmiklu tjóni á Hrauni fjárhagslega og líka sú staðreynd að Rögnvaldur gamli bóndinn sem býr þar hefur eytt mörgum árum ævi sinnar í byggja varpið upp, að sjá þetta síðan eyðilagt hlýtur að vera meira en lítið gremjulegt og sárt.
En annars er allt bara gott að frétta, ég er bara að vinna hérna heima og hef það ágætt (við Jórunn fórum einar heim í kvöldmjaltir meðan hinir eru að skemmta sér fyrir norðan). En núna ætla ég að fara að sofa, ég vaknaði kl. 06:30 í morgun.

That's all folks!

Ţórunn Rögnvaldsdóttir

Lifiđ hvern dag eins og lífiđ vćri ađ hefjast. -Goethe

26. maí 2008 klukkan 14:49
Ég er búin með fyrsta prófið mitt, ég fór sem sagt í frönskuna í morgun léttasta var sem sagt fyrst. Næst er á miðvikudaginn 40% munnlegt ensku próf sem ég er ekkert sérlega hrifin af. Svo ofan á allt annað þá er alveg yndislegt veður sem laðar og lokkar og vill fá mann til þess að gera allt annað en að læra.
Ég fór á sýninguna Killer Joe í gærkveldi, afar sérstök eiginlega svolítið súr sýning, en engu að síður með frekar skemmtilegu plotti, alveg vel þess virði að fara að sjá hana, það var svo sem góður húmor í þessari sýningu en það var oft sem ég vissi í rauninni ekki hvort mér átti að finnast þetta sorglegt eða fyndið. Góð sýning.
En alla vega, langaði bara aðeins að henda inn kveðju, ég ætla að fara að lesa fyrir enskuna.

That's all folks!
Ţórunn Rögnvaldsdóttir

Reyndu ađ komast á tindinn á ţínu fjalli, ţá skal ég gleđjast međ ţér.- Carole Bernes

14. maí 2008 klukkan 10:54
Ég hef verið haldin dálitlum námsleiða uppá síðkastið, mig langar að fara út að vinna eða bara gera eitthvað annað. Ég var heima um helgina og fór og hjálpaði pabba að tína steina og ég fann að ég var farin að sakna þess, þ.e. ekki endilega að tína steina heldur að vera úti og vinna ég hugsa að í framtíðinni eigi ég ekki eftir að endast lengi fyrir aftan skrifstofuborð, ég verð líklega að fá mér einhverja öðruvísi vinnu.
En það styttist í prófin, það eru 12 dagar í að ég fari í fyrsta prófið mitt, ég held að þetta verði svolítið stembið, það eru kannski ekki mörg próf en það er mjög mikið námsefni fyrir þau öll núna er sko gott að hafa fylgst vel með í tímum. En þetta þýðir samt að ég þarf að fara að lesa nokkrar bækur yfir aftur, eins og sumar eru nú þurrar og leiðinlegar.
Ég var í tónfræðiprófi í gær og allt í lagi með það en hins vegar kom Ívar, kennarinn minn, til mín fimm mínútum fyrir prófið og bað mig að tala við sig, þá sagði hann mér það að hann hefði gleymt að segja mér frá svo kölluðu frjálsu verkefni sem gildir 20% af einkuninni minni, sem sagt ég þarf að búa til eitthvað verkefni og skila því til hans, svo var hann ennþó óskipulagðari og gleymdi að segja mér hvenær ég á að skila þessu hann er stundum svo útúr heiminum. Ég ætti eiginlega að vera að gera þetta verkefni núna en á hinn bóginn þá er þýsku munnlegt próf á morgun og ég þarf líka að læra fyrir það, ég er svo gáfuð í staðinn fyrir að gera þetta þá er ég að blogga. En alla vega ég fer að gera þetta rétt strax ég þarf hvort eð er ekki að fara meira í skólann í dag.
Heyrðu já, merkilegar fregnir líka, ég er nýkjörið forkvendi kórs Menntaskólans á Akureyri, sem þýðir að ég fæ rós á stjórnarskiptum sem er klárlega það mikilvægasta hehehe. En þetta er ágætis stjórn sem er með mér, Unnnur, Helga, Hulda og Kristín mér líst mjög vel á þetta allt saman hjá okkur. En núna ætla ég að fara að læra, þýsku munnlega prófið gengur fyrir.

That's all folks!
Ţórunn Rögnvaldsdóttir

Hugsjón ţarf ekki endilega ađ vera sönn ţótt dáiđ sé fyrir hana. - Oscar Wilde

27. apríl 2008 klukkan 16:50

Ég var að læra að skauta afturá bak, ég er samt ekkert mjög góð í því.

Alla vega, ég var að koma af skautum, það er mjög hressandi kalt og þægilegt, ekki það að ég sé mjög hrifin af kuldanum þessa dagana. Þetta er allt í lagi það á að hlýna aftur á miðvikudaginn.

Það eru einungis fjórar vikur eftir af kennsludögum, síðan taka við prófin, hins vegar eru háskólarnir og flestir aðrir framhaldsskólar en MA að byrja með prófin, eða byrjaðir. Ég hlakka dálítið til þegar skólinn verður búinn, en það er svolítið leiðinlegt líka að vera að fara héðan, mér finnst fínt að vera heima en mér finnst líka fínt að vera hérna fyrir norðan sérstaklega þegar ég þarf ekki að sitja í skólastofu allann daginn.

Það eru kosningar í gangi í skólanum núna, sem þýðir að maður fær fullt af ókeypis mat í löngu, ja það er svona mesti plúsinn við þetta allt saman, stundum þegar ég sé hvaða fólk hefur boðið sig fram þá á ég stundum dálítið erfitt með að finna út hvort það er bara grínast með þetta eða er alvara með framboðinu, sumir hugsa ekki nóg áður en þeir framkvæma. Það er aðal ástæðan fyrir því að ég veit aldrei almennilega hverja ég á að kjósa. Oft verða þessar kosningar nánast vinsældakosningar hvort eð er, ef þú átt marga vini þá ertu bara heppinn. Ég ákveð líklega algerlega hverja ég kýs þegar ég er búin að hlusta á þá halda ræðu, ég gerði það í fyrra.

Það verður samt skrýtið að vera í 4. bekk á næsta ári, að vera í elsta árgangum og að fá að busa, þetta verður afar sérstakt.

 

That's all folks!

Ţórunn Rögnvaldsdóttir

Ţađ eru flónin ein sem kanna dýpt vatnsins međ báđum fótum.- Máltćki frá Afríku

13. apríl 2008 klukkan 12:02
Hvað í fjandanum var með þessa söngkeppni? Lagið sem vann var ekki einu sinni gott, flutnigurinn var svo sem enginn horror en hvað var þetta. Þetta er svona lag sem maður man ekkert eftir þegar það var búið. Það voru alveg nokkur önnur lög sem voru mikið betri. Ja, reyndar verð ég svona í fyrsta lagi að segja að mér fannst þessi keppni afskaplega einsleit en á hinn bóginn voru nokkur skemmtileg lög. Sem dæmi má taka lagið frá MR Blóðskuldabók, stúlkurnar úr austur-Skaftafellssýslu með Pamelu í Dallasog svo auðvitað drengirnir frá Hvanneyri með Kyntröll númer eitt, sem voru að sönnu lang flottastir eins og þeir sögðu. Reyndar bjóst ég ekki við miklu frá dómnefnd með manninum sem bjó til hljómsveitir á borð við Luxor og Nylon. Ég er sem sagt ekki sátt við þessa keppni, persónulega fannst mér þessi lög sem ég taldi upp hér að ofan best en það voru nokkur önnur sem voru bara mikið betri en það sem vann. Ég er pínu fegin að þetta er ekki mikið lesin síða, ég gæti lent í alveg ægilegu skítkasti eftir þetta allt.
En fyrir utan pirring minn út í þessa söngkeppni þá er ég svo sem góð. Fyrir utan að ég er með streptakokka sýkingu og þarf að taka penisilín sem er nú ekki beint yndislegasta lyf í heimi. Hins vegar vil ég miklu frekar vera á penisilíni heldur en vera með þessa ömurlegu bakteríu.
Við erum nýbúin að fá að sjá próftöfluna okkar, ég er bara í fimm prófum og þetta er held styðsta próftíð sem ég hef haft. Ég byrja í prófum 26. maí og enda 4. júní. Þetta er rétt rúmlega vika, að vísu hef ég það á tilfinningunni að þetta eigi eftir að vera erfið próf en ég á eftir að bjarga mér eins og alltaf. En það er mjög stutt í þessi blessuðu próf, reyndar er bara mjög stutt þangað til skólinn er búinn, það verður skrýtið að eiga bara einn vetur eftir í þessum skóla. 

That’s all folks!
Ţórunn Rögnvaldsdóttir

Lífiđ er ađeins hugsun. -Samuel T. Coleridge

17. mars 2008 klukkan 20:56
MA lenti í bráðabana við MR, þetta var svo spennandi leikur að ég gat eiginlega ekki setið kyrr! Krakkarnir stóðu sig alveg frábærlega, en töpuðu bráðabananum svo að við fengum ekki Hljóðnemann heim. Ég horfði á þetta heima í stofu, ég var í rauninni ánægð með það ég held að ég hefði ekki þolað við í salnum.
Ég er að fara suður í fermingu á miðvikudaginn, reyndar er ferminginn á Skírdag en ég, mamma og Jórunn förum á miðvikudaginn. Svo tökum við Steinunni með og líklega einn í viðbót með heim, Freyr, Auður og Freyja koma ekki um páskana þannig að það verður ekki öll fjölskyldan hérna. En við skulum líta á björtu hliðarnar, það verður minna af fólki sem ég get ásakað um að hafa stolið einhverju af páskaegginu mínu.
Ég var að hlusta á útvarpið í dag og greip orðið mengunarkvóti á lofti, svo að ég hlustaði aðeins betur og komst að því að það vantar bara „eitt lítið” álver í viðbót til þess að við fyllum upp í kvótann. En  af hverju í fjandanum ættum við að vilja fylla upp í þennan kvóta? Er ekki allur heimurinn á hraðleið til fjandans út af megun, náttúrulega fullt af öðrum hlutum sem orsaka það en ég er meira að tala um náttúruna. Eru ekki gróðurhúsaáhrifin að valda því að jöklar og ís bráðna hraðar, sem þýðir hækkandi yfirborð sjávar? Það þýðir að dýr á norður- og suður heimskautinu munu missa heimkynni sín, s.s. hvítabirnir og svo gæti farið að þau myndu deyja út. Það þýðir líka að hugsanlega getum við horft á Holland fara undir vatn og svo framvegis. Vissulega gerist þetta ekki svo hratt að við sjáum það með berum augum en okkur ætti samt ekki að vera sama! Hvað verður um börnin okkar, í hvernig ástandi ætlum að láta þeim eftir jörðina? Mér finnst að við ættum að minnka þennan megunarkvóta og koma í veg fyrir að það verði byggt „eitt lítið” álver í viðbót.

That's all folks!
Ţórunn Rögnvaldsdóttir

Viđ sjáum hlutina ekki eins og ţeir eru, heldur eins og viđ erum.- Henry M. Tomlinson

14. mars 2008 klukkan 14:41

Pákafríið er byrjað, ég á bara eftir að pakka niður og síðan bruna ég heim í sveitina. Ég verð eins á ferð að vísu þar sem Sindri bróðir náði sér í sæti á Gettu Betur. Þar sem að það gátu ekki allir sem vildu farið þá varð ég eftir, tek Tedda heim og horfi síðan á keppnina í besta sætinu, sófanum heima. Ég á hvort eð er eftir að vera á svo miklum nálum að ég á ekki eftir að geta verið hljóðlát.

Það er búið að vera nóg að gera síðustu daga, reyndar er búið að vera nóg að gera síðustu vikur. Ég fór í söngpróf á föstudaginn, tvö próf í skólanum í vikunni, á að skila ritgerð í dag og svo tók ég þátt í söngvakeppninni núna á miðvikudaginn. Það gekk vel, ég lenti að vísu ekki í sæti en ég er alveg sátt við það sem ég gerði þarna, takk Auður textinn var mjög flottur.Ég ætla ekkert frekar að vera að tala um þessa keppni nema að ég verð að hrósa stúlkunni sem var í öðru sæti, hún er með alveg ofboðslega flotta rödd.

Páskarnir eiga eftir að vera strembnir, það eru tvær fermingar með fjögurra daga milli bili sinn hvoru megin við páskahátíðina sjálfa, að sjálfsögðu. Svo að eitthvað átti að reyna að fara suður en ég veit ekki hvernig það á eftir að ganga, ég held samt að Steinunn systir hafi verið að treysta á að ég mamma kæmum í ferminguna Guðmundar svo að hún kæmist heim með okkur. Svo er ferming heima helgina eftir páska að mig minnir svo að ég verð líklega að fara í hana líka en mig munar svo sem ekkert um það, alla vega er eitt víst, ég á ekki eftir að léttast í fríinu.

En jæja, ég ætla að klára að pakka.

 

Hasta la victoria Ma!

 

That’s all folks!

Ţórunn Rögnvaldsdóttir

Samtvinnuđ blekking og ţekking eru töfrar lífs og listar.- Joseph Joubert

29. febrúar 2008 klukkan 00:41
Kraftaverkin gerast enn, Jón Már gaf okkur heilan frídag í skólanum að vísu hjálpaði ég ekkert til við að syngja okkur frí þar sem hálsbólga hefur verið að plaga mig síðustu daga. Það er sem sagt hlaupársdagur og ég þarf ekki að mæta í skólann á eftir í staðinn ætla ég að halda upp á þennan stórmerkilega dag, sem á ekki að vera til, og fara í leikhús í kvöld og bruna síðan heim í sveit. Vonum að veðrið haldist gott.
Það er ýmislegt að gerast og að gerast, vinstri grænir verða með fund kl. 11:00 á morgun á KEA, verð ekki þar persónulega en hvet alla sem hafa áhuga til að mæta, söngvakeppnin nálgast og páskarnir líka. Ég fer í páskafrí 14. mars og mér finnst eins og ég sé nýbúin í prófunum. Mér hefur alltaf fundist páskaegg vond, eða alla vega man ég ekki eftir öðru, ég vildi bara fá páskaegg af því að það var nammi inni í því. Mér finnst súkkulaðið í páskaeggjunum nefnilega svo vont, ég man að vísu eftir einni gerð páskaeggja sem mér fannst góð og það voru ís-páskaeggin. Þeir sem vita ekki hvað það var þá voru þetta páskaegg eins og öll önnur nema að þau voru fyllt með rjómaís. Ég hef samt ekki rekist á marga sem að muna eftir þessum eggjum, langafi minn gaf okkur krökkunum alltaf svona en ég held að það sé hætt að fraleiða þetta, mér finnst það hálfgerð synd þar sem þetta voru mjög góð egg. Núna sé ég að það eru komin egg með dökku súkkulaði, mér finnst hálf leiðinlegt að mamma sé hætt að kaupa egg handa okkur nema Jórunni náttúrulega, núna fæ ég bara svona pínulítil egg til þess að fá málshátt.
Louis er sem sagt kominn í gang, þ.e. tölvan mín heitir Louis. Eftir mikil átök, svekkelsi og pirring komst hann loks í gagnið og mér hefur verið tjáð að svona endi þetta þegar maður velur bláa litinn, ég mun muna það næst. Engu að síður, þá hef ég séð bleiku tölvurnar og þetta er einhver ljótasti bleiki litur sem ég hef séð! Hann er alla vega ekki flottur á tölvum, eða það finnst mér.
Ég er að lesa bókina Karitas án titils eftir Kristínu Mörju Baldursdóttur, mjög spennandi bók, ég er að vísu að lesa hana fyri skólann sem valbók í íslensku en það er ágætt ég var búin að ætla mér að lesa hana lengi.
En alla vega þá ætla ég að kveðja núna, á þessum degi sem á ekki að vera til.

That's all folks!
Ţórunn Rögnvaldsdóttir